Sumarstarf við umsjón húsnæðis Reykhólaskóla, vegna útleigu sumarið 2024
30.01.2024
Fréttir
Reykhólarheppur auglýsir eftir aðila til að taka að sér umsjón og ræstingar á húsnæði Reykhólaskóla vegna leigu til samkomuhalds og ættarmóta, sumarið 2024.
Starfið fellst í móttöku og aðstoð við leigjendur og þrif að leigu lokinni. Skólahúsnæðið er aðallega leigt út um helgar. Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri vera sjálfstæðir í vinnubrögðum og góðir í mannlegum samskiptum.
Upplýsingar um starfið gefur sveitarstjóri í síma 4303200.
Laun fara eftir kjarasamningum SÍS og viðkomandi stéttarfélags. Sótt er um á vef Reykhólahrepps, eða hér