Sundlaugin - Grettislaug
Grettislaug er að Reykjabraut 12 - rétt fyrir neðan þorpið.
Sími 434 7738, netfang grettislaug@reykholar.is.
Sumaropnun 2022
Sundlaugin er opin sem hér segir:
Alla daga frá 20. júní - 14. ágúst
opið á morgnana 8:00 - 10:00, nema laugardaga og sunnudaga
lokað 10:00 - 13:00
opið alla daga 13:00 - 20:00
Reglur um umgengni sundgesta í Grettislaug
Börnum undir 10 ára aldri er óheimill aðgangur að sundstað nema í fylgd með 15 ára eða eldri syndum einstaklingi. Þar er miðað við að börn ljúki vorönn í grunnskóla árið sem þau verða 10 ára. Ekki skal leyfa viðkomandi að hafa fleiri en tvö börn með sér. Þrátt fyrir þetta hafa laugarverðir sömu skyldum að gegna gagnvart þessum börnum og öðrum gestum þó að þau njóti sérstakrar gæslu fylgdarmanns. Sundgestum skal sérstaklega bent á, að þeir bera fulla ábyrgð á börnum sem eru í fylgd með þeim á sundstað.
_________________________________________________________________________________________