11. maí 2020
Skólaráðsfundur 5. maí 2020
Skólaráðsfundur 5. maí 2020
Bókasafn Reykhólaskóla
Mættir: Anna Björg, Friðrún, Ágústa Bragad., Kolfinna, Aníta Hanna, Adrian og Sara Dögg.
- Skóladagatal 2020 – 2021
- Skóladagatal grunnskóladeildar lagt fram og yfirfarið
- Skóladagatal leikskóladeildar er í vinnslu.
- Hugmynd að leikskóli hefjist ekki fyrr en eftir 15. ágúst svo hægt sé að hafa sameiginlegan starfsdag beggja deilda og að leikskóli starfi fram í júlí. kemur til framkvæmda haustið 2021.
- Fækkun nemenda er framundan í Reykhólaskóla. 6 nemendur útskrifast núna í vor en vitað um 1 nemanda sem kemur inn í haust.
- Kosningar í skólaráð. Skólaráð situr í 2 ár en helmingur ráðsins endurnýjast á ári hverju. Aníta Kristjánsdóttir og Borghildur Eiríksdóttir voru kosnar inn fyrir hönd nemenda og Indíana Svala Ólafsdóttir fyrir hönd grenndarsamfélagsins.
- Skólaþing fyrirhugað í haust.