Skólaráðsfundur 5. maí 2020

Bókasafn Reykhólaskóla

Mættir: Anna Björg, Friðrún, Ágústa Bragad., Kolfinna, Aníta Hanna, Adrian og Sara Dögg.

 

  • Skóladagatal 2020 – 2021
  • Skóladagatal grunnskóladeildar lagt fram og yfirfarið
  • Skóladagatal leikskóladeildar er í vinnslu.
    • Hugmynd að leikskóli hefjist ekki fyrr en eftir 15. ágúst svo hægt sé að hafa sameiginlegan starfsdag beggja deilda og að leikskóli starfi fram í júlí. kemur til framkvæmda haustið 2021.
  • Fækkun nemenda er framundan í Reykhólaskóla. 6 nemendur útskrifast núna í vor en vitað um 1 nemanda sem kemur inn í haust.
  • Kosningar í skólaráð. Skólaráð situr í 2 ár en helmingur ráðsins endurnýjast á ári hverju. Aníta Kristjánsdóttir og Borghildur Eiríksdóttir voru kosnar inn fyrir hönd nemenda og Indíana Svala Ólafsdóttir fyrir hönd grenndarsamfélagsins. 
  • Skólaþing fyrirhugað í haust.

Skólaráðsfundur 30. október 2019

 

Miðvikudagur 30. október 2019 kl: 15:00 á bókasafni Reykhólahrepps 

Mættir: Anna Björg Ingadóttir, Kolfinna Ýr Ingólfsdóttir, Rebekka Eiríksdóttir, Friðrún Gestsdóttir, Lovísa Ósk Jónsdóttir, Adrian Kowalczyk og Sara Dögg Eyvindsdóttir.

 

1. Farið yfir starfssvið skólaráðs. 

  • Hugmynd að kjósa að hausti einn úr 9. bekk til að vera í skólaráði svo einhverjir vanir sitji áfram. Eins með aðra fulltrúa. Fulltrúar sitja í 2 ár en helmingur ráðsins situr áfram (þannig að það sé ekki alltaf nýtt ráð)

2. Farið yfir hlutverk skólaráðs.

3. Í skólaráði Reykhólaskóla skólaárið 2019-2020 eiga sæti:

 

Fulltrúi stjórnenda: Anna Björg Ingadóttir, skólastjóri 

Fulltrúar kennara: Rebekka Eiríksdóttir, Kolfinna Ingólfsdóttir

Fulltrúi starfsmanna: Friðrún Gestsdóttir

Fulltrúar foreldra: Lovísa Ósk Jónsdóttir, Auður Arnarsdóttir

Fulltrúar nemenda: Sara Dögg Eyvindsdóttir, Adrian Kowalczyk

Fulltrúi grenndarsamfélags: Ágústa Bragadóttir

 

  • Það vantar varafulltrúa fyrir alla fulltrúa og óskum við hér með eftir þeim.

 

4. Skólastefna Reykhólahrepps, endurskoðuð á 5 ára fresti.

5. Næsti fundur er 27. nóvember klukkan 15 á bókasafni Reykhólahrepps.

 

Fundi slitið kl. 16:00

Á döfinni

« Mars »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  
Næstu atburðir
Skoða alla atburði
Vefumsjón