Móttaka nýrra starfsmanna
Tilgangurinn með móttökuáætlun er að kynna fyrir nýjum starfsmönnum mikilvæg atriði í skólastarfinu og auðvelda þeim að aðlagast nýjum vinnustað. Skólastjóri er ábyrgur fyrir að farið sé yfir þau atriði sem við eiga með nýjum starfsmanni. Öryggismál Eru minna en tvö ár frá því að viðkomandi sótti slysavarna og skyndihjálparnámskeið? Kynning á viðbragðsáætlun og öryggisferlum skólans. Staðsetning á sjúkrakassa og öryggisupplýsinga. Ábyrgð og hlutverk í viðbragðsáætlunum Heilsufarsupplýsingar s.s. bráðaofnæmi Sér um að nýr starfsmaður undirriti ráðningarsamning. Sýnir nýjum kennara húsakynni skólans. Kynnir stefnu skólans. Kynnir réttindi og skyldur starfsmanna skv. kjarasamningi (s.s. veikindarétt, lífeyrismál, símenntunarákvæði, vinnutímaramma, vinnuskýrslu, stundatöflu, undirbúningstíma, vinnumenningu, starfsreglur, trúnaðar- og þagnarskyldu o.fl.). Sér um að nýr starfsmaður undirriti yfirlýsingu um trúnað og þagnarskyldu. Veitir nýjum starfsmanni upplýsingar um vinnureglur, vinnufyrirkomulag, vinnutíma og starfsmannafundi. Fer yfir starfslýsingu og hæfniskröfur starfsins við kennarann/starfsmanninn, ræðir starfshætti í væntanlegu starfi. Kynnir Aðalnámskrá grunnskóla/skólanámskrá/skóladagatal/starfsáætlun. Kynnir upplýsingamiðla, heimasíðu og Námfús. Kennir nýjum starfsmönnum vinnubrögð við skráningu á t.d. Námfús. Kynnir þjónustu sérkennslu og námsvera. Sér um að allar upplýsingar sem fram koma á kynningarfundinum verði aðgengilegar á sameign. Kynnir hvernig móttöku nýrra nemenda er háttað. Kynnir skipulag matarmála í skólanum, bæði fyrir nemendur og kennara/starfsmenn. Fer yfir hagnýt atriði s.s. kaffitíma, fatnað, hefðir og umgengni í skólanum. Kynnir nýja kennara/starfsmenn á fyrsta starfsmannafundi. Kynnir nýja kennara/starfsmenn fyrir foreldrum. Kynnir brunavarnir skólans, fyrstu viðbrögð við slysum og skráningu á slysum. Kynnir tölvukerfi skólans, tölvupóst, geymslu gagna og prentunarmáta. Kynnir vefsíðu skólans og hver setur efni inn á hana. Afhendir nýjum kennara/starfsmanni lykla (kvittað fyrir). Sér um að nýr kennari fái afhenta vinnutölvu (kvittað fyrir). Bóka nýliðaviðtal með skólastjóra 6-8 vikum eftir að viðkomandi hefur störf. Móttaka nýrra starfsmanna