18. mars 2014
dans-dans-dans
Danskennsla verður í Reykhólaskóla dagana 24. – 27. mars nk. Jón Pétur úr Dansskóla Jóns Péturs og Köru, verður með okkur eins og undanfarin ár og heldur uppi góðu stuði.
Námsskeiðsgjald er 4400 kr. fyrir grunn- og leikskólanemendur (f. 2008 og 2009) fullt verð er fyrir tvö systkini, hálft fyrir það þriðja barn og frítt fyrir fjórða barn. Gjaldið skal greiða í síðasta lagi á miðvikudaginn 26. mars. Jón Pétur tekur á móti greiðslum. Danssýningin verður fimmtudaginn 27. mars kl. 11:00
Endilega hafið samband ef nemendur ætla ekki að vera með.
Vonumst eftir 100% þátttöku
Kær kveðja
Starfsfólk Reykhólaskóla