Skólasetning í Reykhólaskóla
Skólasetning grunnskóladeildar verður mánudaginn 22. ágúst kl. 08:30 í matsal Reykhólaskóla. Allir velkomnir. Að lokinni skólasetningu fara nemendur með umsjónarkennurum í sínar stofur, þar sem þau fá afhenda stundarskrá og farið verður yfir dagskrá vetrarins.
Innkaupalista er hægt að nálgast á heimasíðu skólans. Við viljum minna foreldra á að námskynning Reykhólaskóla verður fimmdaginn 8. september.
Mötuneyti Reykhólaskóla verður að sjálfsögðu starfrækt. Nemendur fá morgunverð í skólanum kl. 09:50 þar er í boði hafragrautur, súrmjólk og ávextir.
Í hádeginu er afgreiddur heimilismatur og nemendur fá ávexti á eftir.
Verð fyrir skólamáltíð
Nemendur í 1. – 4. bekk 7813 kr. pr. mán*.
Nemendur í 5. – 7. bekk 10602 kr. pr. mán*.
Nemendur í 8. – 10. bekk 12723 kr. pr. mán*.
*þessi verð eru miðuð við að nemendur sé í mat alla daga.
Foreldrar geta valið ákveðna daga í vikunni en það verður að láta vita af því fyrirfram. Vinsamlegast hafið samband við Ástu Sjöfn (skolastjori@reykholar.is eða í síma 434-7806) ef þið viljið að börnin ykkar séu ekki alla daga vikunnar eða ekki í mat.
Síðstliðið vor var átakið göngum í skólann, þar sem nemendur og starfsmenn komu fótgangandi í skólann. Búið er að ákveða að halda þessu átaki áfram og hafa yfirskriftina „göngum eða hjólum í skólann“ eitthvað fram í október (fer eftir veðri og vindum). Nemendur í grunnskóla sem koma með skólabílnum verður hleypt út hjá Reykhólakirkju. Við hvetjum foreldra til þess að láta börnin ganga/hjóla í skólann.
Kennarar og starfsfólk Reykhólaskóla hlakkar til samstarfs og samveru á komandi skólaári.
Kveðja Ásta Sjöfn Kristjánsdóttir, skólastjóri