19. ágúst 2015
Skólasetning í Reykhólaskóla
Skólasetning grunnskóladeildar verður mánudaginn 24. ágúst kl. 08:30 á bókasafni Reykhólaskóla. Allir velkomnir. Að lokinni skólasetningu fara nemendur með umsjónarkennurum í sínar stofur, þar sem þau fá afhenda stundarskrá og farið verður yfir dagskrá vetrarins. Innkaupalista er hægt að nálgast á heimasíðu skólans. Við viljum minna foreldra á að námskynning Reykhólaskóla verður miðvikudaginn 9. september.
Kennarar og starfsfólk Reykhólaskóla hlakkar til samstarfs og samveru á komandi skólaári.
Kveðja Ásta Sjöfn Kristjánsdóttir, skólastjóri