20. október 2016
Sérfræðingarnir koma 26. október
Ágætu foreldrar/forráðamenn.
Elmar Þorðarson sérkennslufulltrúi og talmeinafræðingur og Brynjólfur G. Brynjólfsson sálfræðingur verða til viðtals og leiðsagnar í skólanum nk. miðvikudag, 26. október.
Þeir foreldrar/forráðamenn sem óska eftir viðtalstíma fyrir sig og barn sitt eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við umsjónarkennara eigi síðar en á mánudaginn 24. október.
Umsjónarkennarar hafa samband við foreldra/forráðamenn ef þeim þykir brýnt að ræða við sérfræðingana um stöðu einstakra nemenda.
Ásta Sjöfn Kristjánsdóttir, skólastjóri