16. febrúar 2015
ÖSKUDAGSBALL á vegum foreldrafélagsins
Á miðvikudaginn verður foreldrafélagðið með hið árlega öskudagsball, kl.
15:00. Foreldrum er velkomið að koma í skólann kl. 14:30 til að aðstoða
börnin sín í búningana. Nemendum leikskóladeildar verður ekki fylgt á
ballið heldur er það á ábyrð foreldra að koma þeim þangað, það sama gildir
um nemendur í grunnskóladeild.
Unglingadeildin verður með kaffisölu og kostar það 300 kr. fyrir
grunnskólabörn en 500 kr. fyrir fullorðna. Posi á staðnum.