ÖSKUDAGSBALL á vegum foreldrafélagsins
Á morgunn klukkan 15:00 verður kötturinn sleginn úr tunnunni í íþróttahúsinu.
Ekki er gert ráð fyrir að nemendur grunnskóladeildar mæti í búning í skólann. Nemendur fá að nota síðustu kennslustund fyrir ball til þess að gera sig tilbúin, foreldrum er velkomið að koma og aðstoða þau. Leikskólanemendum er velkomið að koma skrautklædd í upphafi dags.
Leikskólinn fer ekki með nemendur á ballið og er því foreldrum leikskólabarna bent á að ef þeir hafa áhuga á að kíkja á ballið með börnunum þá verði foreldrar að sækja þau á leikskólann.
Foreldrar eru vinsamlegast beðnir um að láta skólabílstjóra
vita ef börnin þeirra fara ekki heim með bílnum.
Kaffiveitingar verða á vegum nemendafélagsins:
Verð fyrir fullorðna 500 kr.
Verð fyrir börn á grunnskólaaldri 300 kr.
Frítt fyrir yngri en grunnskólabörn