20. apríl 2016
Nemendur í 1. og 2. bekk fengu góðar gjafir.
Nemendur í 1. bekk fengu gefins hjálma frá Kiwanis. Öll börn í 1. bekk á landinu fá gefins hjálm frá Kiwanis og hefur Eimskip styrkt þá til þessa flotta framtaks. Skólastjórinn sá um að afhenda hjálmana. Einnig fengu krakkarnir í 2. bekk góða gjöf frá Skátahreyfingunni. En þau fengu öll íslenska fánann frá þeim. Á myndina vantar Hildigunni Sigrúnu en hún var veik þennan dag.
Okkur í Reykhólaskóla finnst þetta vera frábært framtak hjá Kiwanis og Skátahreyfingunni.