13. mars 2014

Nemendur 3. og 4. bekk taka þátt í ljóðasamkeppni.

Nemendur í 3. og 4. bekk hafa að undanförnu verið að semja ljóð í skólanum og ætla að taka þátt í ljóðasamkeppni meðal vestfirskra grunnskólanema í tengslum við Bókahátíðina á Flateyri sem haldin verður 20. – 22. mars. Ekkert ákveðið þema er í keppninni og mega þessi ungu skáld yrkja um hvað sem andinn blæs þeim í brjóst. Dómnefnd mun svo velja þrjú bestu ljóðin sem send verða inn og fá höfundar þeirra afhent vegleg verðlaun á Bókahátíðinni. Einnig er stefnt að því að gefa út litla ljóðabók með ljóðum úr samkeppninni.

Á döfinni

« Mars »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  
Næstu atburðir
Skoða alla atburði
Vefumsjón