Nám og Gleði og Súpa.
Við minnum foreldra á að námskynning Reykhólaskóla Nám og Gleði verður miðvikudaginn 10. október 17:00. Hólabær mun einnig vera með kynningu á starfsemi leikskólans. Að kynningu lokinni verður boðið upp á súpu.
Dagskráin hefst kl. 17:00
Klukkan |
Hvað á að gera |
Hvar |
17:00 – 17:20 |
Kynning fyrir foreldra leikskólabarna í leikskólanum þar sem farið verður yfir starf vetrarins. |
Í leikskólanum |
17:00 – 17:20 |
Foreldrar fara og hitta umsjónarkennara barna í 8-10 bekk. Þar sem farið verður yfir fyrirkomulag á kennslunni í vetur og nauðsynlegar upplýsingar. |
Í umsjónarstofu. |
17:20 – 17:40 |
Foreldrar fara og hitta umsjónarkennara barna í 1-2 bekk og 3-4 bekk þar sem farið verður yfir fyrirkomulag á kennslunni í vetur og nauðsynlegar upplýsingar. |
Í umsjónarstofum. |
17:40 – 18:00 |
Foreldrar fara og hitta umsjónarkennara barna í 5-7 bekk. Þar sem farið verður yfir fyrirkomulag á kennslunni í vetur og nauðsynlegar upplýsingar. |
Í umsjónarstofu. |
Við hvetum alla foreldra til þess að koma.
Kveðja starfsfólk
Reykhólaskóla