15. desember 2016
Litlu jólin og jólafrí í Reykhólaskóla
Kæru foreldrar/forráðamenn
Við gerum þá breytingu á skólastarfinu þriðjudaginn 20. desember vegna „Litlu jólanna“ að nemendur mæta í skólann kl 9:00 og fara heim um kl 12:00 og þá eru nemendur grunnskóladeildar komnir í jólafrí.
Þennan dag ætla nemendur í grunnskóladeild að vera með pakkajól í sinni stofu, hámark pakkans er 800 - 1000 kr.
Leikskóladeildin fer síðan í jólafrí 23. desember og opnar aftur þriðjudaginn 3. janúar.
Okkur langar að þakka fyrir samstarfið á þessu ári og óska ykkur gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.
Nemendur mæta svo aftur til skóla miðvikudaginn 4. janúar 2016.
Kær kveðja
Starfsfólk Reykhólaskóla