2. maí 2016

Leikskólakennari óskast

Reykhólaskóli / Árni Geirsson.
Reykhólaskóli / Árni Geirsson.

Leikskóladeild Reykhólaskóla óskar eftir að ráða leik-skólakennara (deildarstjóra í tímabundið starf) í 100% starf til eins árs frá og með 12. ágúst. Vinnutíminn er frá kl. 8 til 16.

 

Hæfniskröfur:

  • Réttindi sem leikskólakennari skv. 3. gr. laga nr. 87/2008*)
  • Færni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Stundvísi
  • Jákvæðni og áhugasemi

 

Reykhólaskóli er sameinaður leik- og grunnskóli. Í leikskóladeildinni er ein deild með 20 börnum á aldrinum 1-5 ára. Einkunnarorð skólans eru Vilji er vegur. Lögð er áhersla á skapandi starf og nám í gegnum leik.

 

*) Ef ekki berast umsóknir frá leikskólakennurum sem uppfylla hæfniskröfur er heimilt að ráða leiðbeinanda í stöðuna tímabundið til eins árs.

 

Allar frekari upplýsingar veitir skólastjóri, Ásta Sjöfn Kristjánsdóttir, í síma 434 7731 og netfanginu skolastjori@reykholar.is.

 

Umsóknarfrestur er til 25. maí.

 

Á döfinni

« Mars »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  
Næstu atburðir
Skoða alla atburði
Vefumsjón