13. mars 2014

Frétt um 1.og 2.bekk.

Áhugasamir krakkar!
Áhugasamir krakkar!
1 af 4

Dugnaður nemenda í 1.og 2.bekk er með ólíkindum. Ég hef varla haft undan að útvega þeim ný verkefni í vetur, hvort sem það er í íslensku eða stærðfræði. Ekki líður sá dagur að ekki komi nemandi til mín og tilkynni mér að annað hvort vanti hann nýja lestrarbók eða nýja stærðfræðibók heim. Í vetur eru nemendur mínir búnir að lesa a.m.k. 110 - 120 bækur samanlagt, ýmist heima eða í skólanum. Þarna er ekki verið að telja þær sögubækur og blöð sem lesin eru í frjálsum lestri heima eða í skólanum. Reyndar er þetta afskaplega ánægjulegt verkefni og ég er lánsöm að fá að kenna svona duglegum krökkum, takk fyrir mig krakkar.
Meðfylgjandi myndir sýna áhuga nemendanna á lestri og lestrartengdum verkefnum. Fleiri myndir verða settar inn á facebook síðu skólans.
Steinunn Ó. Rasmus

Á döfinni

« Mars »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  
Næstu atburðir
Skoða alla atburði
Vefumsjón