Framundan í Reykhólaskóla
Síðustu vikur í Reykhólaskóla eru búnar að vera markaðar af veikindum nemenda og starfsmanna. Við höfum þó náð nokkurn veginn að halda út kennslu. Í dag eru 19 nemendur í grunnskólanum fjarverandi og 11 nemendur í leikskólanum.
Framundan eru annarskipti og verður starfsdagur kennara þann 16. febrúar og því enginn grunnskóli.
Elmar Þorðarson sérkennslufulltrúi og talmeinafræðingur og Brynjólfur G. Brynjólfsson sálfræðingur verða til viðtals og leiðsagnar í skólanum nk. þriðjudag, 17. febrúar.
Þeir foreldrar/forráðamenn sem óska eftir viðtalstíma fyrir sig og barn sitt eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við umsjónarkennara eigi síðar en á fimmtudaginn 12. febrúar.
Umsjónarkennarar hafa samband við foreldra/forráðamenn ef þeim þykir brýnt að ræða við sérfræðingana um stöðu einstakra nemenda.
Breytingar eru á skóladagatali Reykhólaskóla. Árshátíð skólans flyst fram um eina viku og verður 6. mars í stað 13. mars. Þemavika flyst einnig um eina viku og verður 23. – 27. febrúar í stað 2. – 6. mars. Þema vikunar er Sturlungaöld.