30. apríl 2018
Fræðslufundur um svefn
Hvernig svafstu?
Fræðslufundur um svefn verður haldinn í matsal Reykhólaskóla mánudaginn 30. apríl kl. 20:00. Í þessum fyrirlestri verður fjallað um mikilvægi svefns fyrir andlega og líkamlega heilsu með sérstakri áherslu á svefn meðal barna og unglinga.
Fyrirlesari er Dr. Erla Björnsdóttir. Erla er sálfræðingur sem hefur sérhæft sig í rannsóknum og meðferð svefnvanda og gaf nýlega út bókina Svefn. Erla vinnur við rannsóknir á svefni við Háskóla Íslands og rekur Sálfræðiráðgjöfina þar sem hún aðstoðar fólk sem glímir við svefnvanda.
Fyrirlesturinn er í boði Félagsþjónustunnar.