Veður og færð
Upplýsingar um færð og veður frá Vegagerðinni
- Færð og veður - a) Vestfirðir
- Færð og veður - b) Vesturland
- Færð og veður - c) Landið alltUpplýsingar um færð á vegum eru skráðar kl. 7-22 á tímabilinu frá 1. nóvember til 30. apríl - kl. 8-16 á tímabilinu frá 1. maí til 31. október - og birtast hér nánast um leið. Utan þessa tíma sólarhringsins breytast upplýsingarnar ekki og nokkru eftir miðnætti eru þær hreinsaðar út. Veðurupplýsingarnar koma hins vegar frá sjálfvirkum veðurstöðvum og uppfærast því allan sólarhringinn. Á kortunum eru ítarlegar skýringar á táknum.
Veðurathuganir og veðurspár frá Veðurstofu Íslands
- Veðurathuganir - Breiðafjörður / ReykhólarÁ kortinu sést hitastig, vindátt og vindstyrkur á Reykhólum (græni punkturinn) og mörgum öðrum sjálfvirkum veðurstöðvum á stóru svæði í kring. Þessar upplýsingar uppfærast á klukkutíma fresti. Neðan við kortið er skrá yfir veðrið á Reykhólum á klukkutíma fresti síðustu tólf tímana. Þar er líka hægt að fletta upp þeim upplýsingum fyrir síðustu sex daga og jafnframt að fá upp línurit bæði fyrir síðasta sólarhring og fyrir síðustu sjö daga. Til beggja hliða á síðunni má svo fletta upp margvíslegum upplýsingum og fróðleik frá Veðurstofu Íslands.
- Veðurspá - Breiðafjörður / GilsfjörðurÁ kortinu sést sjálfvirk spá fyrir Gilsfjörð (græni punkturinn) og marga aðra staði á stóru svæði í kring. Undir kortinu er tímaborði þar sem hægt er að velja ákveðnar tímasetningar sex daga fram í tímann. Þar fyrir neðan er veðurspáin fyrir Gilsfjörð sett fram á myndrænan hátt næstu sex dagana. Þegar farið er enn neðar má lesa textaspá fyrir Breiðafjörð næsta einn til einn og hálfan sólarhring og síðan fyrir landið allt næstu daga. Til beggja hliða á síðunni má svo fletta upp margvíslegum upplýsingum og fróðleik frá Veðurstofu Íslands.
