Hlunnindasýningin
Gamla samkomuhúsinu við Maríutröð
(á sama stað og Upplýsingamiðstöðin)
Sími 434 7830
Netfang info@reykholar.is
Hlunnindasýningin á Reykhólum er helguð gjöfum náttúrunnar við Breiðafjörð og nýtingu þeirra, einkum á fyrri tíð. Fuglarnir gáfu egg og kjöt í matinn og verðmætan dún í sængur og kodda. Selurinn gaf kjöt og spik og skinnið var notað til klæðagerðar. Hér má kynnast veiðum á sel og fugli og hirðingu eggja og dúns og meðhöndlun þessara nytja eins og tíðkaðist um aldir og jafnvel fram á okkar daga.
Breiðafjörðurinn og héruðin í kring hafa þá sérstöðu, að jafnvel í mestu hallærum og harðindum hérlendis varð þar aldrei bjargarskortur, svo er fjölbreyttum hlunnindum fyrir að þakka. Á sýningunni getur að líta ýmsa þá fugla sem gáfu björg í bú, auk andstæðunnar, hafarnarins volduga, sem var illræmdur vágestur í æðarvarpi.
Hlunnindasýningin er í sama húsi og Upplýsingamiðstöð ferðafólks og Bátasafn Breiðafjarðar við afleggjarann niður að þorpinu á Reykhólum, rétt áður en komið er að bensínstöðinni og versluninni Hólakaupum.
