Tenglar

Bátasafn Breiðafjarðar

« 1 af 3 »

Gamla samkomuhúsinu við Maríutröð
(við hliðina á Upplýsingamiðstöð ferðafólks)

Sími 434 7830 / 892 2240 / 899 5047

Netfang hlunnindi@reykholar.is

 

Opið eftir samkomulagi. Enginn aðgangseyrir.

 

Bátasafn Breiðafjarðar á Reykhólum hefur síðustu árin dregið saman á þriðja tug gamalla báta úr Breiðafjarðareyjum og héruðum í kring og bjargað flestum þeirra frá eyðileggingu. Sumir eru varðveittir í misjöfnu ásigkomulagi eftir tímans tönn, gert er við aðra og enn aðrir eru endurbyggðir. Starfið er í fullum gangi og þess vegna er safnið lifandi vinnustaður ekki síður en sýningarstaður.

Upphafsmaður bátasafnsins var Aðalsteinn Aðalsteinsson báta- og bryggjusmiður úr Hvallátrum á Breiðafirði en helsti drifkraftur þess er breiðfirski skipasmiðurinn Aðalsteinn Valdimarsson, roskinn maður sem er þar við vinnu sína flesta daga. Þá er hægt að líta inn þó að safnið sé ekki opið samkvæmt klukku.

Bátasafnið er í sama húsi og Upplýsingamiðstöð ferðafólks og Hlunnindasýningin á Reykhólum. Vegna þrengsla eru allmargir bátanna þó geymdir annars staðar.

Vefur Bátasafns Breiðafjarðar - skoðið ekki síst myndasíðurnar!
 

Atburðadagatal

« Mars 2010 »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Héðan og þaðan