Tenglar

Bátasafn Breiðafjarðar

1 af 3

Gamla samkomuhúsinu við Maríutröð
(við hliðina á Upplýsingamiðstöð ferðafólks)

Sími 434 7830
Netfang info@reykholar.is

 

Bátasafn Breiðafjarðar á Reykhólum hefur síðustu árin dregið saman á þriðja tug gamalla báta úr Breiðafjarðareyjum og héruðum í kring og bjargað flestum þeirra frá eyðileggingu. Sumir eru varðveittir í misjöfnu ásigkomulagi eftir tímans tönn, gert er við aðra og enn aðrir eru endurbyggðir. Starfið er í fullum gangi og þess vegna er safnið lifandi vinnustaður ekki síður en sýningarstaður.

Upphafsmaður bátasafnsins var Aðalsteinn Aðalsteinsson, báta- og bryggjusmiður úr Hvallátrum á Breiðafirði.

Bátasafnið er í sama húsi og Upplýsingamiðstöð ferðafólks og Hlunnindasýningin á Reykhólum. Vegna þrengsla eru allmargir bátanna þó geymdir annars staðar.

Vefur Bátasafns Breiðafjarðar - skoðið ekki síst myndasíðurnar!
 

Bókasafnið

Héraðsbókasafn Reykhólahrepps er til húsa í gamla leikfimisalnum í Reykhólaskóla.
Sími 894 1011.

 

Afgreiðslutími

Mánudaga kl. 15-17.

Miðvikudaga kl. 13-15.

Fyrsta laugardag í hverjum mánuði kl. 10-12 og lesið fyrir börnin kl. 11.

 

Sjá hér varðandi afgreiðslutíma í desember 2011.

  
Bókavörður

Harpa Eiríksdóttir

 

Bókasafnsskírteini (árskort) fyrir árið 2012 kostar kr. 2.400.
             

Dvalarheimilið Barmahlíð

Dvalarheimilið Barmahlíð. Minnismerki Jóns Thoroddsens í forgrunni til hægri.
Dvalarheimilið Barmahlíð. Minnismerki Jóns Thoroddsens í forgrunni til hægri.

Barmahlíð, hjúkrunar- og dvalarheimili

Hellisbraut 57

Reykhólum
380 Reykhólahreppur

Sími 434 7816

 

Í Barmahlíð starfa 9 manns á vöktum og 2 í eldhúsi.
Heimilið hefur pláss fyrir 13 í hjúkrunarrýmum og 2 í dvalarrýmum.

 

Hjúkrunarforstjóri er Þuríður Stefánsdóttir, beinn sími 434 7817.

 

Umsóknareyðublað um dvöl í Barmahlíð.

Matarsala í Barmahlíð - verðskrá

Barmahlíð 20 ára - afmælisfagnaður 11. mars 2008 - myndasyrpa (Óskar Steingrímsson).
        

Hlunnindasýningin

Gamla samkomuhúsinu við Maríutröð

(á sama stað og Upplýsingamiðstöðin)
 

Sími 434 7830

Netfang info@reykholar.is
  

Hlunnindasýningin á Reykhólum er helguð gjöfum náttúrunnar við Breiðafjörð og nýtingu þeirra, einkum á fyrri tíð. Fuglarnir gáfu egg og kjöt í matinn og verðmætan dún í sængur og kodda. Selurinn gaf kjöt og spik og skinnið var notað til klæðagerðar. Hér má kynnast veiðum á sel og fugli og hirðingu eggja og dúns og meðhöndlun þessara nytja eins og tíðkaðist um aldir og jafnvel fram á okkar daga.

 

Breiðafjörðurinn og héruðin í kring hafa þá sérstöðu, að jafnvel í mestu hallærum og harðindum hérlendis varð þar aldrei bjargarskortur, svo er fjölbreyttum hlunnindum fyrir að þakka. Á sýningunni getur að líta ýmsa þá fugla sem gáfu björg í bú, auk andstæðunnar, hafarnarins volduga, sem var illræmdur vágestur í æðarvarpi.

 

Hlunnindasýningin er í sama húsi og Upplýsingamiðstöð ferðafólks og Bátasafn Breiðafjarðar við afleggjarann niður að þorpinu á Reykhólum, rétt áður en komið er að bensínstöðinni og versluninni Hólakaupum.

 

Íþróttahúsið á Reykhólum

Íþróttahúsið á Reykhólum er rétt við Reykhólaskóla.

Reglur um útleigu og gjaldskrá

Pantanir á skrifstofu Reykhólahrepps, sími 434 7880.
          
Bókanir veturinn 2009-2010 (Excel-skjal).
 

Leikskólinn Hólabær

Bryndís, Adda og Margrét.
Bryndís, Adda og Margrét.

Leikskólinn Hólabær
Skólabraut 1

380 Reykhólahreppur

Sími 434 7832

 

Starfsmenn

Björg Karlsdóttir leikskólastjóri

Bergljót Bjarnadóttir

Ágústa K. Bragadóttir

Íris Sigþórsdóttir

Ólafía Sigurvinsdóttir

Friðrún Gestsdóttir stuðningsfulltrúi

Guðrún Guðmundsdóttir stuðningsfulltrúi

Andrea Björnsdóttir þroskaþjálfi


Leikskólagjald er kr. 24.600 fyrir heilan dag í mánuð.
 
Umsóknareyðublað vegna leikskóla / dagvistunar
 
Myndasyrpur frá starfi Hólabæjar má skoða hér og hér
 



Reykhólaskóli

Skólabraut 1

Reykhólum

380 Reykhólahreppur

Sími 434 7731

 

Í Reykhólaskóla er samkennsla árganga og hafa kennarar umsjón með fleiri en einum árgangi eða bekk. Skólastjóri er Júlía Guðjónsdóttir.

 

Vefur Reykhólaskóla

Matarsala í Reykhólaskóla - verðskrá

Útleiga Reykhólaskóla vegna ættarmóta og funda - verðskrá
          

Samkomuhúsin

Upplýsingar og pantanir á skrifstofu Reykhólahrepps í síma 434 7880.


Samkomuhúsið á Reykhólum

Maríutröð

Sími 434 7830

Yfir sumarið er Hlunnindasýningin á Reykhólum í samkomusal hússins.

  
Félagsheimilið Vogaland

Króksfjarðarnesi

Sími 434 7705
            

Slökkvilið Reykhólahrepps

 

Útkallssími 112
 

Slökkviliðsstjóri

Guðmundur Ólafsson, Litlu-Grund, heimasími 434 7757, gsm 892 3328

  
Brunavarnaáætlun fyrir Reykhólahrepp (pdf-skjal, 2,34 MB)
 

Sundlaugin - Grettislaug

Grettislaug er 25 metra útilaug með heitum pottum og leikföngum.
Grettislaug er 25 metra útilaug með heitum pottum og leikföngum.

Grettislaug er að Reykjabraut 12 - rétt fyrir neðan Reykhólaþorp.

Sími 434 7738

 

Forstöðumaður

Dísa Sverrisdóttir

 
Vetrartími - 1. september 2011 til 31. maí 2012

        Alla virka daga (nema miðvikudaga) kl. 16-20.

        Laugardaga kl 13-18.

        Lokað er á miðvikudögum og sunnudögum eins og undanfarin ár.

        ATH - Laugin er lokuð vegna árlegs viðhalds frá 16. maí

        og fram undir hvítasunnu (27. maí)

 

Gjaldskrá fyrir Grettislaug

        smellið hér

 

Reglur um umgengni sundgesta í Grettislaug

Börnum undir 10 ára aldri er óheimill aðgangur að sundstað nema í fylgd með 15 ára eða eldri syndum einstaklingi. Ekki skal leyfa viðkomandi að hafa fleiri en tvö börn með sér. Miðað er við afmælisdag. Þrátt fyrir ákvæði þetta hafa laugarverðir sömu skyldum að gegna gagnvart þessum börnum og öðrum gestum þó að þau njóti sérstakrar gæslu fylgdarmanns. Sundgestum skal sérstaklega bent á, að þeir bera fulla ábyrgð á börnum sem eru í fylgd með þeim á sundstað.

         
        Lyftinga- og æfingasalur á neðri hæð laugarhússins er opinn á sama tíma og laugin.
 
        Tjaldsvæðið á Reykhólum er við Grettislaug.
 
Sjá einnig:
        Gósenland fugla og ferðafólks á Reykhólasvæðinu

Tjaldstæðið á Reykhólum

1 af 2
Tjaldstæðið á Reykhólum er við Grettislaug í suðurjaðri þorpsins. Þarna er svæði fyrir tjöld, tjaldvagna og húsbíla og annað slíkt og hægt að fá rafmagn. Afgreiðsla er í Grettislaug, sími 434 7738.

 

Gjaldskrá fyrir tjaldsvæðið á Reykhólum 2010

 

Sjá einnig:

Gósenland fugla og ferðafólks á Reykhólasvæðinu
 

Upplýsingamiðstöðin

Upplýsingamiðstöð ferðafólks á Reykhólum

Gamla samkomuhúsinu við Maríutröð

(við afleggjarann niður í Reykhólaþorp)

 

Sími 434 7830

info@reykholar.is

 

Forstöðumaður Harpa Eiríksdóttir, ferðamálafulltrúi Reykhólahrepps.

Opið sumarið 2011 kl. 10-18

alla daga vikunnar frá 1. júní til 31. ágúst

 

Upplýsingamiðstöðin er í stórri byggingu vinstra megin við afleggjarann niður að Reykhólaþorpi (Maríutröð)
rétt áður en komið er að bensínstöðinni og versluninni Hólakaupum. Nýja Bátaverndar- og hlunnindasýningin
(áður Hlunnindasýningin á Reykhólum og Bátasafn Breiðafjarðar) er í sama húsi.

 

Atburðadagatal

« Maí 2012 »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Héðan og þaðan