Tenglar

fimmtudagur 12. mars 2009

Smáauglýsingar

Hér í þessum dálki má koma á framfæri án endurgjalds smáauglýsingum og ýmsu öðru smálegu sem fólk vill koma á framfæri. Ekki er þó ætlast til að hér birtist auglýsingar í atvinnuskyni frá fólki eða fyrirtækjum sem hafa engin sérstök tengsl við Reykhólahrepp. Smáauglýsingar eða annað smáræði til birtingar hér sendist vefnum í tölvupósti eða í síma 892 2240.

 

sunnudagur 23. maí 2010

Vantar nýtt heimili fyrir Pjakk

Hundurinn Pjakkur leitar að nýju heimili, helst í sveit. Hann er ársgamall terrier, fæddur 29. maí í fyrra. Mamman er silkiterrier og pabbinn cairn-terrier. Pjakkur er í Reykjavík og síminn hjá honum er 867 0685. Pjakkur er örmerktur og sprautaður.

 

miðvikudagur 12. maí 2010

Húseign til sölu

Til sölu er húseignin að Borgabraut 3, Hólmavík. Um er að ræða einbýlishús á tveimur hæðum sem er 183 m2 að flatarmáli, að meðtöldum bílskúr á neðri hæð. Á efri hæð eru 4 svefnherbergi, stofa, eldhús, gangur, hol og anddyri. Á neðri hæð er stórt þvottahús, geymsla og bílskúr. Baðherbergi er flísalagt og einnig gólf í forstofu. Á öðrum gólfum á efri hæð er parket /parketdúkur og er það nýlagt á einu herbergjanna og eldhúsinu. Öll efri hæðin er nýlega máluð í ljósum litum.

 

Húsið er steinsteypt, byggt 1963. Bílskúrshurðin er ný og nýjar læsingar á útihurðum. Lítill sólpallur er við húsið. 700 m2 lóð fylgir húsinu. Áskilinn réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Skipti á minni/ódýrari húseign á Hólmavík koma til greina.

 

Upplýsingar gefur Kristín í síma 867 3164.

 

þriðjudagur 2. febrúar 2010

Opið hús í Hólabæ 5. febrúar

Dagur leikskólans er 6. febrúar, en þann dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín. Þetta er þriðja árið í röð sem leikskólar halda daginn hátíðlegan. Leikskólakennarar munu þennan sama dag fagna 60 ára afmæli félagsins m.a. með útgáfu veglegs afmælisrits.

 

Dagur leikskólans er samstarfsverkefni Félags leikskólakennara, mennta- og menningarmálaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Heimilis og skóla. Tilgangurinn er að auka jákvæða umræðu um leikskólann, vekja umræðu um hlutverk hans og starf leikskólakennara og kynna starfið út á við.

 

Af þessu tilefni ætlum við að hafa opið hús kl. 14-16 föstudaginn 5. febrúar.

 

Allir eru velkomnir að koma og skoða leikskólann, spjalla við okkur og sjá hvað við höfum verið að gera undanfarið.

 

- Nemendur og kennarar Hólabæjar.

 

laugardagur 2. janúar 2010

Vantar skíði, skó og skauta

Vantar 100 cm skíði og skíðaskó (nr. 31-33) og einnig skauta nr. 30 og 33.

Rebekka og Kristján, s. 845 7653.

 

fimmtudagur 6. ágúst 2009

Sveitamarkaður á Reykhóladaginn

Skorum á alla sem eru að dútla eitthvað heima hjá sér og búa til alls kyns góðgæti eða hafa eitthvað annað skemmtilegt fram að færa að vera með á sveitamarkaðinum sem verður haldinn á Reykhóladaginn 29. ágúst. Nánari upplýsingar veitir Kolfinna Ýr í síma 861-3761.

 

fimmtudagur 6. ágúst 2009

Lið óskast í spurningakeppni

Óskað er eftir liðum í spurningakeppni sem á að fara fram á Reykhólum 27. og 28. ágúst. Í hverju liði eiga að vera þrír. Skorum á fyrirtæki, vinahópa, félagasamtök, bændur og búalið að skrá sig til keppni. Hægt er að skrá sig hjá Ástu Sjöfn í síma 849-8531.

 

þriðjudagur 28. júlí 2009

Statistar í bíómynd óskast

Tökur standa enn yfir á „Laxdælu Lárusar Skjaldarsonar" í Dalabyggð og vantar okkur enn statista í nokkrar senur teknar í Búðardal, nánar tiltekið:

     - miðvikudag 29. júlí frá kl. 13:30 (fólk á öllum aldri velkomið, börn og fullorðnir)

     - fimmtudag 30. júlí frá kl. 11:00 (fullorðnir)

     - miðvikudag 5. ágúst kl. 12:00 (fullorðnir)

     - föstudag 7. ágúst kl. 10:30 (börn og fullorðnir)

 

Við pössum vel upp á statistana okkar hvað varðar kaffi og veitingar og höfum náð að halda uppi góðri stemmningu á tökustað. Ef þið viljið vera með okkur, endilega hafið samband við Katrínu Ólafsdóttur í síma 847-0847.

 

fimmtudagur 23. júlí 2009

Bátsskrokkur til sölu

Til sölu norskur Viking 900 (skrokkur) árg. 1990. Skrokkurinn er vélarlaus og tilbúinn til innréttingar. Lengd 9,45 m (31 fet), breidd 3,45 m. Skrokkurinn hefur aldrei farið á flot. Til greina kemur að skipta á sumarbústaðalandi sem liggur að sjó. Fyrirspurnir sendist á gosk@torg.is eða í síma 820-6463.

 

þriðjudagur 28. apríl 2009

Vantar notaða dieselvél

Vantar netta, notaða, nothæfa diselvél á bilinu 8-20 hp sem á að fara í skútu sem ég er að gera upp. Vinsamlega að láta mig vita um verð og ástand í síma 864 7174 eða tölvupósti petur.einarsson@fjs.is

 

Atburðadagatal

« September 2010 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30    

Héðan og þaðan