Skólaráðsfundur 30. október 2019
Skólaráðsfundur 30. október 2019
Miðvikudagur 30. október 2019 kl: 15:00 á bókasafni Reykhólahrepps
Mættir: Anna Björg Ingadóttir, Kolfinna Ýr Ingólfsdóttir, Rebekka Eiríksdóttir, Friðrún Gestsdóttir, Lovísa Ósk Jónsdóttir, Adrian Kowalczyk og Sara Dögg Eyvindsdóttir.
1. Farið yfir starfssvið skólaráðs.
- Hugmynd að kjósa að hausti einn úr 9. bekk til að vera í skólaráði svo einhverjir vanir sitji áfram. Eins með aðra fulltrúa. Fulltrúar sitja í 2 ár en helmingur ráðsins situr áfram (þannig að það sé ekki alltaf nýtt ráð)
2. Farið yfir hlutverk skólaráðs.
3. Í skólaráði Reykhólaskóla skólaárið 2019-2020 eiga sæti:
Fulltrúi stjórnenda: Anna Björg Ingadóttir, skólastjóri
Fulltrúar kennara: Rebekka Eiríksdóttir, Kolfinna Ingólfsdóttir
Fulltrúi starfsmanna: Friðrún Gestsdóttir
Fulltrúar foreldra: Lovísa Ósk Jónsdóttir, Auður Arnarsdóttir
Fulltrúar nemenda: Sara Dögg Eyvindsdóttir, Adrian Kowalczyk
Fulltrúi grenndarsamfélags: Ágústa Bragadóttir
- Það vantar varafulltrúa fyrir alla fulltrúa og óskum við hér með eftir þeim.
4. Skólastefna Reykhólahrepps, endurskoðuð á 5 ára fresti.
5. Næsti fundur er 27. nóvember klukkan 15 á bókasafni Reykhólahrepps.
Fundi slitið kl. 16:00