Hátíðarkveðjur frá Skruggu
Leikfélagið Skrugga í Reykhólahreppi óskar vinum sínum og velunnurum gleðilegrar jólahátíðar. Sjáumst hress og kát á nýju ári!
...Meira
Leikfélagið Skrugga í Reykhólahreppi óskar vinum sínum og velunnurum gleðilegrar jólahátíðar. Sjáumst hress og kát á nýju ári!
...„Hann er strax farinn að rífa kjaft rétt eins og venjulega og það er auðvitað góðs viti“, sagði Bergsveinn Reynisson (Beggi á Gróustöðum) síðdegis í gær kampaglaður um bróður sinn, Sævar Inga Reynisson, sem slasaðist við vinnu sína í bátnum Knolla BA í Reykhólahöfn í gær. Fólki á Reykhólum brá í brún þegar fyrst kom lögreglujeppi með bláum ljósum á gríðarlegri siglingu á flughálkunni, síðan björgunarsveitarbíll og loks sjúkrabíll, líka með bláum blikkljósum. Björgunarsveitarmenn í Reykhólahreppi brugðust snarlega við og jafnvel elstu menn muna ekki eins mikinn flýti á þeim annars þó hinum alltaf sérlega hvatlega manni Tómasi Sigurgeirssyni (Tuma bónda á Reykhólum) og svo alvarlegan svip á þeim annars alltaf glaðlega manni.
...Ungmennafélagið Stjarnan verður með félagsvist í Tjarnarlundi í Saurbæ kl. 20 annan jóladag, mánudag. Veitt verða fyrstu, önnur og þriðju verðlaun og setuverðlaun karla og kvenna. 700 krónur kostar á mann. Sjoppa er á staðnum en enginn posi. „Sjáumst vonandi hress og kát“, segir í tilkynningu.
...Gáttaþefur þefaði sig inn í Þörungaverksmiðjuna á Reykhólum í nótt. Eins og fram hefur komið í fréttum er smjörskortur í Noregi og þess vegna voru send frá Reykhólum til Noregs ein 1.400 tonn af þangmjöli svo að þar væri hægt að baka og hafa líka eitthvað ofan á brauð. Þeir Artur og Torfi voru á vakt í verksmiðjunni í nótt og gáfu Gáttaþef brauð með þangáleggi og þjóðlega blöndu af malti og appelsíni. Þegar Einar Sveinn og Þorgeir komu í morgun voru þeir ekki ánægðir og sögðu að hér væri þjóðlegast að drekka hveravatn með þangmjölinu.
...Ljóðabókin hans Manna í Mýrartungu (Jóns heitins Snæbjörnssonar frá Stað í Reykhólasveit) seldist upp í Hólakaupum á Reykhólum nánast á samri stundu og hún kom þangað. Vonast er til að meira berist í Hólakaup á morgun, Þorláksmessu, ef ferð fellur. Annars verður bókin þar eftir helgina.
...„Þrátt fyrir alla þessa umferð með tilheyrandi umferðarhávaða hafa ernir við Vestfjarðaveg komið upp ungum ár eftir ár. Þessi vegagerðarhávaði sem Skipulagsstofnun virðist hafa uppgötvað hlýtur að vera alveg sérstakt fyrirbæri og sætir furðu að ekki hafi verið birtar um þetta lærðar greinar“, segir Þórólfur Halldórsson, fyrrv. sýslumaður í Barðastrandarsýslum og núverandi og frá upphafi nefndarmaður í Breiðafjarðarnefnd.
...Maður slasaðist við vinnu sína um borð í báti í Reykhólahöfn í morgun og var fluttur til Reykjavíkur með þyrlu. Hann skarst illa á handlegg á slípirokk og missti mikið blóð. Við komuna á slysadeild í Reykjavík fór hann strax í aðgerð. Læknar telja líklegast að maðurinn bíði engan varanlegan skaða af þessu þó að hugsanlegt sé að hann missi einhvern mátt í fingrum.
...Skötuveisla Lions verður eins og endranær í matsal Reykhólaskóla á Þorláksmessu og stendur milli kl. 12 og 14. Saltfiskur verður í boði fyrir þá sem treysta sér ekki í skötuna. Að sjálfsögðu er skatan ekta vestfirsk og kemur frá Flateyri. „Skatan í ár lofar góðu“, segir Halldór Hermannsson úr Ögurvík við Djúp, hinn landsþekkti skötufræðingur á Ísafirði, sem hefur um langan aldur verið fastur álitsgjafi fjölmiðla um skötu líkt og Ólafur Þ. Harðarson prófessor (sem er af vestfirskum ættum) um stjórnmál. Eins og með suðræn vín þykir sérfræðingum skatan vera misjöfn eftir árgöngum.
...Út var að koma hjá Vestfirska forlaginu handbók um hjólreiðaleiðir á Vestfjörðum og kemur hún hjólreiðafólki í góðar þarfir þegar sumrar. Þar eru meðal annars lýsingar á nokkrum leiðum sem liggja um Reykhólahrepp. Handbókin heitir Hjólabókin og undirtitill er Dagleiðir í hring á hjóli. Höfundur er Ómar Smári Kristinsson á Ísafirði. Í riti þessu, sem er nýlunda hérlendis, er að finna ítarlegar upplýsingar um fjórtán freistandi dagleiðir í hring á hjóli.
...„Við erum á þjóðvegi númer 60, Vestfjarðavegi milli Bjarkalundar og Flókalundar, sem margir telja með fegurstu þjóðleiðum á Íslandi. Hérna fara menn fjörð eftir fjörð án þess að sjá eitt einasta byggða ból. Á leið að vestan aka menn um samfelldar eyðibyggðir í einn og hálfan tíma áður en komið er að Skálanesi, sem nú er orðið útvörður byggðarinnar. En þannig var það ekki þegar Hallgrímur Jónsson var þar að stíga sín fyrstu spor fyrir meira en áttatíu árum. Þegar hann var ungur var búið á um fjörutíu bæjum í Múlasveit og Gufudalssveit og í eyjunum úti fyrir sem heyrðu undir Flateyjarhrepp. Síðan hafa heimilin horfið hvert af öðru og X-unum fjölgað á landakortum, táknum eyðibýla.“
...