Tenglar

Eins og hér hefur áður komið fram stendur Landbúnaðarháskóli Íslands í samvinnu við Veislu að vestan fyrir námskeiði á Reykhólum í heimavinnslu mjólkurafurða með áherslu á ostagerð. Dagsetningin hefur hins vegar verið færð til um einn dag þannig að námskeiðið verður sunnudaginn 21. mars en ekki á laugardeginum. Farið verður í einstaka þætti ostaframleiðslu og tilbúningur einstakra ostategunda skoðaður til að fá tilfinningu fyrir muninum á framleiðslu á t.d. skyri, brauðosti, gráðaosti og smurostum og hvað þarf til.
...
Meira
Allir renus og slagurinn fæst á gosann.
Allir renus og slagurinn fæst á gosann.
Vinafélag Grettislaugar á Reykhólum efnir til félagsvistar í húsnæði Hlunnindasýningarinnar við Maríutröð á fimmtudag, 11. mars. Spilamennskan hefst kl. 20 og miðaverðið er 600 krónur. Allir eru velkomnir. Ætlunin var að halda vistina fyrir hálfum mánuði en þá varð að fresta henni vegna veðurs og færðar. Nú horfir hins vegar langtum betur í þeim efnum.
...
Meira
þriðjudagur 9. mars 2010

Mikils vænst af sameiningu sveitarfélaga

Miklar væntingar eru gerðar til hugmynda um sameiningu sveitarfélaga varðandi eflingu sveitarstjórnarstigsins. Þess er vænst er umbótaferlinu verði lokið árið 2014. „Það var því stór áfangi þegar Kristján L. Möller, ráðherra sveitarstjórnarmála, og Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, ákváðu að móta nýjar leiðir til eflingar sveitarstjórnarstigsins með sameiningum“, sagði Ragnhildur Hjaltadóttir, ráðuneytisstjóri samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis, í erindi á ráðstefnu fjármálaráðuneytisins, verkefnisins sóknaráætlun 20/20 og Stofnunar stjórnsýslufræða við HÍ, sem haldin var um endurskipulagningu opinberrar þjónustu.
...
Meira
Jóhannes, Vigdís, Sigurbjartur, Haraldur, Sveinn, Guðný og Árni.
Jóhannes, Vigdís, Sigurbjartur, Haraldur, Sveinn, Guðný og Árni.
Haraldur Benediktsson á Vestra-Reyni var á Búnaðarþingi í vikunni endurkjörinn formaður Bændasamtaka Íslands og fékk hann öll 45 atkvæði þeirra sem þingið sátu. Sex vou kosin í stjórn með Haraldi en ellefu gáfu kost á sér til setu í stjórn. Sveinn Ingvarsson í Reykjahlíð fékk 45 atkvæði, Jóhannes Sigfússon á Gunnarsstöðum 41 atkvæði, Sigurbjartur Pálsson á Skarði 40 atkvæði, Vigdís M. Sveinbjörnsdóttir á Egilsstöðum 40 atkvæði, Árni Brynjólfsson á Vöðlum 23 atkvæði og Guðný Helga Björnsdóttir á Bessastöðum 22 atkvæði.
...
Meira
Forgangsröðun í nýtingu vatnsafls og jarðhita er eitt af brýnustu grundvallarmálum fyrir íbúa á Vestfjörðum. Eru virkjunarkostir á Vestfjörðum innan sjónmáls í þeirri forgangsröðun eða ekki? Ef ekki, hvaða aðgerða þarf þá að grípa til svo að samfélög og atvinnulíf á Vestfjörðum njóti sömu gæða og öryggis í raforkumálum líkt og aðrir landshlutar hafa haft um áratuga skeið?
...
Meira
Félag eldri borgara í Reykhólahreppi og Dalabyggð hefur gert lista yfir opið hús hjá félaginu í mars og apríl, með fyrirvara þó um breytingar. Opið hús er á fimmtudögum kl. 13.30 í húsnæði Rauða krossins við Vesturbraut í Búðardal. Kaffi og meðlæti kostar 200 krónur. Opið hús verður sem hér segir:
...
Meira
Menningarráð Vestfjarða hefur nú auglýst eftir styrkumsóknum vegna fyrri úthlutunar 2010. Umsóknarfrestur er til sunnudags 28. mars. Bent er sérstaklega á nánari upplýsingar í úthlutunarreglum sem samþykktar hafa verið fyrir þessa úthlutun, en þær er að finna á vef ráðsins á slóðinni www.vestfirskmenning.is. Menningarfulltrúi Vestfjarða, Jón Jónsson, gefur einnig allar nánari upplýsingar í síma 891-7372 eða í netfanginu menning@vestfirdir.is.
...
Meira
miðvikudagur 3. mars 2010

Stóra upplestrarkeppnin á Reykhólum

Elínborg Egilsdóttir.
Elínborg Egilsdóttir.
Stóra upplestrarkeppnin í 7. bekk grunnskólanna er komin á lokastig þetta árið. Á Reykhólum fer hún að þessu sinni fram í íþróttahúsinu á Reykhólum á mánudaginn, 8. mars, og hefst kl. 17. Fulltrúi Reykhólaskóla í keppninni er Elínborg Egilsdóttir á Mávavatni. Allir eru velkomnir á samkomuna.
...
Meira
miðvikudagur 3. mars 2010

Þjóðaratkvæðagreiðsla 6. mars 2010

Kjörfundur vegna þjóðaratkvæðagreiðslu í Reykhólahreppi verður haldinn laugardaginn 6. mars 2010. Kosið verður í einni kjördeild í sveitarfélaginu, í Hótel Bjarkalundi. Kjörfundur hefst kl. 10:00 og honum lýkur kl. 18:00. Sérstök athygli er vakin á því að kjósendum er skylt að gera kjörstjórn grein fyrir sér með því að framvísa persónuskilríkjum með mynd. Aðsetur kjörstjórnar Reykhólahrepps á kjördegi verður í Hótel Bjarkalundi. Kjörskrá liggur frammi á skrifstofu Reykhólahrepps frá 27. febrúar fram á kjördag.
...
Meira
Kjörskráin í Reykhólahreppi vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar um Icesave-lögin á laugardag liggur frammi á skrifstofu hreppsins við Maríutröð á Reykhólum. Samkvæmt henni eru samtals 211 manns á kjörskrá í hreppnum eða 108 karlar og 103 konur. Skrifstofan er opin virka daga frá kl. 10 til 15.
...
Meira

Atburðadagatal

« Febrúar 2012 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      

Héðan og þaðan