Tenglar

fimmtudagur 22. desember 2011 | Hlynur Þór Magnússon

Vinnuslys: Fór betur en á horfðist

Knolli BA í öreigaslippnum svokallaða í Reykhólahöfn (mynd úr safni).
Knolli BA í öreigaslippnum svokallaða í Reykhólahöfn (mynd úr safni).

Maður slasaðist við vinnu sína um borð í báti í Reykhólahöfn í morgun og var fluttur til Reykjavíkur með þyrlu. Hann skarst illa á handlegg á slípirokk og missti mikið blóð. Við komuna á slysadeild í Reykjavík fór hann strax í aðgerð. Læknar telja líklegast að maðurinn bíði engan varanlegan skaða af þessu þó að hugsanlegt sé að hann missi einhvern mátt í fingrum.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Maí 2012 »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Skólastarf

Skóli Leikskóli

Stofnanir

Héðan og þaðan

Eiríkur á Stað á Þokka.