Tenglar

fimmtudagur 28. ágúst 2008 | Hlynur Þór Magnússon

Vegurinn um Þorskafjarðarheiði með alversta móti

Vegfarendur sem farið hafa um Þorskafjarðarheiði að undanförnu segja farir sínar ekki sléttar. Vegurinn er með alversta móti og fólk hefur dauðséð eftir því að hafa valið þessa leið, sem varla geti talist fær venjulegum bílum, uppvaðin moldardrulla og skorningar þar sem bílarnir taka niðri. Sverrir Guðbrandsson verkstjóri hjá Vegagerðinni á Hólmavík hafði ekki heyrt af þessu en sagði að málið yrði athugað strax á morgun. Hann kvaðst ekki geta sagt hvað gert yrði en spáð væri miklum rigningum og varla myndi ástandið batna við það. Sverrir sagði að Jón Hörður Elíasson rekstrarstjóri Vegagerðarinnar á Hólmavík muni koma úr fríi eftir helgina og þá verði ákveðið hvað yrði gert til úrbóta eða hvort eitthvað verði yfirleitt gert.
 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Maí 2012 »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Skólastarf

Skóli Leikskóli

Stofnanir

Héðan og þaðan

Mynd með frétt á Reykhólavefnum 28. apríl 2011. Auðvelt er að finna viðkomandi frétt (og oft fleiri myndir sem fylgja) með því að smella á Eldri fréttir neðan við fréttadálkinn á forsíðunni og finna þar mánuðinn og dagsetninguna.