Tenglar

föstudagur 12. mars 2010 | Hlynur Þór Magnússon

Strandagangan við Steingrímsfjörð

Strandagangan verður haldin í Selárdal við Steingrímsfjörð á morgun, laugardag. Þetta er 16. árið í röð sem gangan er haldin en fyrsta Strandagangan var haldin snjóaveturinn 1995. Það er ástæða til að hvetja fólk til að fjölmenna í Selárdal, annað hvort til að vera með í göngunni eða fylgjast með bestu skíðagöngumönnum landsins, sem sumir eru nýkomnir úr Vasagöngunni. Brautin sést öll frá veginum fram að Geirmundarstöðum. Ágætt er fyrir áhorfendur að hafa kíki meðferðis.

 

Skráning fer fram á staðnum milli kl. 11.30 og 12.20 en þá eru yngstu aldursflokkar ræstir af stað.

 

Að göngu lokinni er kaffihlaðborð og verðlaunaafhending í Félagsheimilinu á Hólmavík. Selt er inn á kaffihlaðborðið fyrir aðra en keppendur og starfsmenn til styrktar starfsemi Skíðafélagsins.

 

Þetta kemur fram á vefnum strandir.is.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Febrúar 2012 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      

Skólastarf

Skóli Leikskóli

Stofnanir

Héðan og þaðan

Mynd með frétt á Reykhólavefnum 24. apríl 2011. Auðvelt er að finna viðkomandi frétt (og oft fleiri myndir sem fylgja) með því að smella á Eldri fréttir neðan við fréttadálkinn á forsíðunni og finna þar mánuðinn og dagsetninguna.