mánudagur 28. september 2009 | Hlynur Þór Magnússon
Sameinaðir stöndum vér
Skórinn sem hér var auglýst eftir um daginn kom í leitirnar í skólanum, þökk sé Hönnu, segir Gulla á Gróustöðum. Vegna þess að margir hafa spurt hana frétta af skónum finnst henni við eiga að þetta sé tilkynnt hér á vefnum. Eða eins og hún segir: „Hægri og vinstri sameinaðir á ný og farnir að skokka sem aldrei fyrr.“
Vinstri skór á þrítugsaldri tapaður eftir Reykhólaball
