Nærfellt hundrað þúsund heimsóknir árið 2009
Eins og gefur að skilja eru langflestar heimsóknirnar á vefinn hér innanlands. Hins vegar má koma nokkuð á óvart, að hann hefur skv. vefmælingunni verið heimsóttur á nýliðnu ári í 83 löndum í öllum heimshornum. Þau lönd þar sem hann hefur verið heimsóttur oftast næst á eftir Íslandi eru eftirtalin og í þessari röð: Bretland, Bandaríkin, Danmörk, Noregur, Svíþjóð, Þýskaland, Spánn, Kanada og Holland. Ljóst má vera að í öllum þessum löndum og allmörgum fleiri er fólk sem fylgist reglulega með vefnum. Þetta bendir til þess, að hann sé ekki aðeins heimafólki í Reykhólahreppi hugsanlega til nokkurs gagns og fróðleiks, heldur einnig að fólk með rætur í héraðinu vilji fylgjast með því sem fram vindur á gömlum slóðum.
Hér fylgja nokkrar ótextaðar svipmyndir sem birst hafa á nýliðnu ári. Smellið á myndirnar til að stækka þær.

Harpa Eiríksdóttir, föstudagur 01 janúar kl: 14:12
Finnst það frábært að heyra fréttir úr sveitinni sinni þegar maður býr erlendis.
Gleðilegt nýtt ár og sjáumst hress á komandi ári þegar vorar