Tenglar

laugardagur 24. október 2009 | Hlynur Þór Magnússon

Líður að lokum umsóknarfrests hjá Menningarráði

Jón Jónsson menningarfulltrúi.
Jón Jónsson menningarfulltrúi.
Nú er tæp vika til stefnu til að sækja um styrki til Menningarráðs Vestfjarða við seinni úthlutun á árinu 2009. Þegar eru komnar nokkrar ágætar umsóknir í hús, segir í tilkynningu. Umsóknarfrestur er til 30. október og sækja þarf um styrki til afmarkaðra menningarverkefna á Vestfjörðum. Umsóknir eru bornar saman á samkeppnisgrundvelli, þannig að fara þurfa saman áhugaverð verkefni og góðar umsóknir til að líkur séu á að styrkur fáist. Menningarráð Vestfjarða hefur skilgreint ákveðna áhersluþætti við hverja úthlutun fram að þessu og við seinni úthlutun 2009 verður litið sérstaklega til menningarverkefna sem fela í sér eftirtaldar áherslur:

 

   a. Nýsköpun á sviði lista og menningarstarfs.

   b. Verkefni sem miða að fjölgun starfa.

   c. Samstarf milli menningarstofnanna, byggðarlaga eða listgreina og uppsetning viðburða á fleiri en einum stað.

   d. Verkefni sem miða að því að ungt fólk komi í auknum mæli að listsköpun og menningarstarfi á Vestfjörðum.

 

Athygli er vakin á því að styrkir einskorðast ekki við þessar áherslur og umsóknir um annars konar menningarverkefni eiga einnig fullt erindi.

 

Rafrænt umsóknarblað, leiðbeiningar og úthlutunarreglur er að finna á vef Menningarráðs Vestfjarða - vestfirskmenning.is. Í úthlutunarreglum er skilgreint hvernig verkefni Menningarráðið styður og einnig má skoða eldri úthlutanir til að fá hugmynd um það. Styrkir til verkefna hafa verið á bilinu 50 þúsund til 1,5 milljón.

 

Allar nánari upplýsingar gefur menningarfulltrúi Vestfjarða, Jón Jónsson á Kirkjubóli, í síma 891 7372 og netfanginu menning@vestfirdir.is.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Maí 2012 »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Skólastarf

Skóli Leikskóli

Stofnanir

Héðan og þaðan

Mynd með frétt á Reykhólavefnum 13. apríl 2011. Auðvelt er að finna viðkomandi frétt (og oft fleiri myndir sem fylgja) með því að smella á Eldri fréttir neðan við fréttadálkinn á forsíðunni og finna þar mánuðinn og dagsetninguna.