Tenglar

mánudagur 21. desember 2009 | Hlynur Þór Magnússon

Helgihald í Reykhólaprestakalli um jólin

Úr kirkjunni í Garpsdal við Gilsfjörð.
Úr kirkjunni í Garpsdal við Gilsfjörð.
Messur verða víða í Reykhólaprestakalli um jólin. Á aðfangadag kl. 16 verður guðsþjónusta á Dvalarheimilinu Barmahlíð á Reykhólum og hátíðarhelgistund á aðfangadagskvöld kl. 22.30 í Reykhólakirkju. Á jóladag verður messa í Garpsdalskirkju kl. 17 en messunni í Gufudal hefur verið aflýst*). Annan jóladag verður messa í Staðarhólskirkju í Saurbæ kl. 15 og síðan í Skarðskirkju á Skarðsströnd kl. 17. Prestur er sr. Elína Hrund Kristjánsdóttir, organisti er Svavar Sigurðsson og félagar úr kór Reykhólaprestakalls syngja.

 

Minnt skal á atburðadagatalið hér efst til hægri.

 

Vefur Reykhólaprestakalls

 
*) Vegna útlits með færð. Breyting á fréttinni gerð síðdegis á aðfangadag.
 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Maí 2012 »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Skólastarf

Skóli Leikskóli

Stofnanir

Héðan og þaðan

Barmahlíðardagurinn 21. apríl 2011. Handavinnusýning í Barmahlíð. Ljósm. Ólafur Haukur Gíslason.