Tenglar

fimmtudagur 24. júlí 2008 | Hlynur Þór Magnússon

Gáttir - umsóknarfrestur framlengdur

Umsóknarfrestur um þátttöku í verkefninu Gáttir - þróunarverkefni í menningartengdri ferðaþjónustu hefur verið framlengdur til 5. ágúst vegna fjölda ábendinga um að tími sé knappur til umsóknagerðar. Hér er um að ræða tveggja ára stuðningsverkefni í vöruþróun menningartengdrar ferðaþjónustu. Með verkefninu er stefnt að því að auka framboð á arðbærri vöru eða þjónustu í menningartengdri ferðaþjónustu og stuðla að faglegum lausnum við vöruþróun í greininni.

 

Nánari upplýsingar hér á vef Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands. Frekari upplýsingar veita Sigríður Ó. Kristjánsdóttir verkefnastjóri hjá Impru á Nýsköpunarmiðstöð í síma 861-4913, netfang sirry@nmi.is, og Ferðamálastofa á Akureyri í síma 464-9990.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Maí 2012 »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Skólastarf

Skóli Leikskóli

Stofnanir

Héðan og þaðan

Myndasyrpa frá aðalfundi Æðarræktarfélags Íslands 2011, sem haldinn var á Reykhólum 27. ágúst. Myndirnar tók Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir, hlunnindaráðgjafi og atvinnu- og nýsköpunarráðgjafi hjá Bændasamtökum Íslands.