sunnudagur 4. október 2009 | Hlynur Þór Magnússon
Fyrsti konuhittingur haustsins á Skriðulandi
Konuhittingur verður á Skriðulandi í Saurbæ á þriðjudagskvöld. Þar með verður þráðurinn tekinn upp á nýjan leik eftir að hann féll niður þegar sauðburðurinn hófst og aðrar vorannir tóku allan tíma fólks. Hittingurinn byrjar kl. 20 og stendur eins lengi og hentar. Konur hafi með sér einhverja handavinnu. Karlar mega koma þrátt fyrir nafnið á hittingnum enda hafi þeir líka með sér handavinnu og einbeiti sér að henni. Léttar veitingar verða í boði. Reikna má með því að hittingar af þessu tagi verði á Skriðulandi fyrsta þriðjudaginn í mánuði í vetur nema annað verði tilkynnt.

Kristín Einars, miðvikudagur 07 október kl: 18:08
Gaman að koma í Skriðuland, hvort sem er til að borða eða skoða gjafavörurnar. Megum við "fyrir handan" líka mæta á konuhitting?