þriðjudagur 15. júní 2010 | Hlynur Þór Magnússon
Endalaus trjágróður hjá Jóni Atla Játvarðarsyni
Núna eru garðyrkjustörfin á fullu á Reykhólum sem annars staðar. Þar á meðal er Jón Kjartansson flokksstjóri með vaskan hóp ungmenna að störfum hjá Vinnuskóla Reykhólahrepps. Jón Atli Játvarðarson lætur ekki sitt eftir liggja og klippir endana af runnunum í garði sínum svo að brátt verður hann með endalausa runna.
Sjá nánar hér.

Guðjón D Gunnarsson, þriðjudagur 15 júní kl: 16:34
Klippir hann báða endana, efri og neðri?