þriðjudagur 3. janúar 2012 | Hlynur Þór Magnússon
Breyting á aðalskipulagi Reykhólahrepps 2006-2018
Sveitarstjórn Reykhólahrepps samþykkti þann 10. nóvember 2011 breytingu á aðalskipulagi Reykhólahrepps 2006-2018, Vestfjarðavegur frá Eiði í Vattarfirði að sveitarfélagamörkum í Kjálkafirði. Tillagan var auglýst skv. 31. gr. skipulagslaga og bárust engar athugasemdir.
Bogi Kristinsson
skipulags- og byggingafulltrúi
Ingibjörg B. Erlingsdóttir
sveitarstjóri
