þriðjudagur 1. júní 2010 | Hlynur Þór Magnússon
Auglýst eftir umsjónarmanni á Hlunnindasýninguna
Reykhólahreppur óskar eftir að ráða umsjónarmann Hlunnindasýningarinnar sumarið 2010. Starfið felst í vörslu sýningarinnar, leiðsögn um hana, þrif og annað tilfallandi. Einnig er upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn á Hlunnindasýningunni, sem yrði á ábyrgð starfsmanns. Enskukunnátta nauðsynleg.
Nánari upplýsingar á skrifstofu Reykhólahrepps, Maríutröð 5a, Reykhólum, sími 434 7880.
Umsóknir sendist inn til Reykhólahrepps fyrir 8. júní.

Hlynur Þór Magnússon, miðvikudagur 02 júní kl: 18:40
Hef verið í þessu hlutverki undanfarin fjögur sumur. Óska arftaka mínum velfarnaðar!