Tenglar

föstudagur 23. apríl 2010 | Hlynur Þór Magnússon

Arnarhjónin skiptast á að liggja á eggjunum

Unnið að viðhaldi á heimilinu.
Unnið að viðhaldi á heimilinu.
Þau gleðilegu tíðindi - kannski þó ekki fyrir alla - hafa nú orðið, að arnarhjónin heimsfrægu í ótilgreindri eyju í Reykhólahreppi eru orpin og skiptast á að liggja á. Vonast er eftir sólríkri tíð þannig að vefmyndavélin við hreiðrið sem notast við sólarrafhlöður haldist gangandi. Myndavélin er nú í gangi við hreiðrið þriðja árið í röð. Í hitteðfyrra komu hjónin upp unga en í fyrra misfórst útungunin, eins og stundum gerist hjá erninum. Tengill inn á myndavélina er í dálkinum Tenglar hér vinstra megin - Arnarsetrið, smellið á vefmyndavél.

 

Það skal tekið fram, að tengiborðarnir þar birtast í handahófskenndri röð sem alltaf breytist þegar farið er inn á vefinn á ný. Tengill getur verið efst í dálkinum núna en síðan allt annars staðar næst.

 
Eins og flestir kannast líklega við eru það hjónin Signý M. Jónsdóttir og Bergsveinn Reynisson á Gróustöðum við Gilsfjörð sem standa að þessu framtaki undir heitinu Arnarsetur Íslands.
 

Athugasemdir

#1

Valgerður Guðleifsdottir, laugardagur 24 apríl kl: 20:19

Þetta eru og voru æðislegar myndir.

#2

Kristín Arnberg, laugardagur 24 apríl kl: 22:23

Vonandi gengur betur núna ,gaman að fylgjast með þessum tignarlegu fuglum.

#3

Stefanía Sófusdóttir, þriðjudagur 27 apríl kl: 14:35

Alveg er stórkostlegt að vera á gæjum hjá þeim hjónum gaman að filgjast með hafið miklar þakkir fyrir.

#4

Kristín Arnberg, sunnudagur 06 júní kl: 21:21

Frábært eftir að vera búinn að fylgjast með að sjá að það er kominn ungi hjá þessum tignarlegu hjónum.Takk fyrir að fá að fylgjast með.

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Maí 2012 »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Skólastarf

Skóli Leikskóli

Stofnanir

Héðan og þaðan

Ljósm. Þórarinn Ólafsson.