Tenglar

miðvikudagur 17. febrúar 2010 | Hlynur Þór Magnússon

Áfram unnið að sameiningu ráðuneyta

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir að enn sé unnið að sameiningu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins og iðnaðarráðuneytisins í eitt atvinnuvegaráðuneyti. Hún segist gera sér grein fyrir að andstaða sé við fyrirhugaða sameiningu meðal hluta Vinstri grænna. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er kveðið á um sameiningu ráðuneytanna. Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra segir aftur á móti að ekki séu nein skynsamleg rök fyrir slíkri sameiningu. Ýmis samtök bæði í landbúnaði og sjávarútvegi, auk sveitarfélaga, hafa ályktað á sama veg.

 

Sigurgeir Sindri Sigurgeirsson, varaþingmaður Framsóknarflokks í Norðvesturkjördæmi, spurði Jóhönnu á Alþingi í gær hvort hún ætli að beita sér fyrir því að sameiningunni verði frestað.

 

Meira hér á visir.is

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Maí 2012 »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Skólastarf

Skóli Leikskóli

Stofnanir

Héðan og þaðan

Mynd með frétt á Reykhólavefnum 19. sept. 2011. Auðvelt er að finna viðkomandi frétt (og oft fleiri myndir sem fylgja) með því að smella á Eldri fréttir neðan við fréttadálkinn á forsíðunni og finna þar mánuðinn og dagsetninguna.