Tenglar

Atburðir

Menningarráð auglýsir eftir styrkumsóknum

Frestur til að sækja um styrki frá Menningarráði Vestfjarða við fyrri úthlutun 2010 rennur út sunnudaginn 28. mars.

 

Nánar hér

 

Námskeið í heimavinnslu mjólkurafurða

Landbúnaðarháskóli Íslands stendur í samvinnu við Veislu að vestan fyrir námskeiði á Reykhólum í heimavinnslu mjólkurafurða með áherslu á ostagerð. Námskeiðið verður sunnudaginn 21. mars og stendur kl. 10-17.

Nánar hér
 

Hagkvæm hollusta - námskeið

Námskeið fyrir þá sem langar til að breyta mataræðinu eða bæta við hollum og bragðgóðum mat úr úrvals hráefni fyrir sanngjarnt verð. Haldið á Reykhólum laugardaginn 20. mars kl. 11-13. Á námskeiðinu verður kennt að útbúa einfalda, fljótlega, ódýra, holla og bragðgóða grænmetis- og baunarétti ásamt ljúfum hollustudesert. Formið á námskeiðinu er fræðsla og sýnikennsla sem endar í sameiginlegri máltíð. Uppskriftamappa fylgir ásamt fullri máltíð. Leiðbeinandi Sólveig Eiríksdóttir (www.himnesk.is). Verð kr. 4.900. Skráning í síma 437 2390 eða í netfanginu skraning@simenntun.is. (www.simenntun.is).
 

Fyrirlestur um detox og hollustu

Á þessum fyrirlestri, sem haldinn verður á Reykhólum föstudaginn 19. mars kl. 19-21, er lögð áhersla á detox (afeitrunar) mataræði og heilsusamlega lifnaðarhætti dags daglega. Kenndar ýmsar aðferðir sem auðvelt er fyrir hvern og einn að tileinka sér og setja inn í sína daglegu rútínu, sem stuðlar að því að viðhalda daglegu líkamlegu heilbrigði. Einnig verður farið í aðferðir sem losa ykkur við löngun í alls konar óhollustu og auðvelda ykkur að viðhalda kjörþyngd. Að lokum verður sýnikennsla í því að búa til holla sjeika og drykki.

 

Leiðbeinandi Sólveig Eiríksdóttir www.himnesk.is

Verð kr. 2.900. Skráning í síma 437 2390 eða í netfanginu skraning@simenntun.is

www.simenntun.is

 

Augnlæknir í Búðardal

Guðrún J. Guðmundsdóttir augnlæknir verður á Heilsugæslustöðinni í Búðardal föstudaginn 19. mars. Tímapantanir í síma 434 1113.

 

Kynning á þverun fjarða og sjávarfallavirkjun

Bjarni M. Jónsson heldur opinn fund á Reykhólum fimmtudaginn 18. mars þar sem kynntar verða hugmyndir um að samþætta veg og virkjun í sameiginlegu mynni Þorskafjarðar, Djúpafjarðar og Gufufjarðar. Þetta er hugmynd sem varð til þegar Bjarni vann að meistaraprófsritgerð við Háskólasetrið á Ísafirði í fyrra. Fundurinn verður í Reykhólaskóla og hefst kl. 19.30.

 

Sjá nánar hér

 

Helgihald á Reykhólum

Helgistund verður í Barmahlíð á Reykhólum kl. 14.30 sunnudaginn 14. mars. Um kvöldið eða kl. 20.30 verður „léttmessa“ í kirkjunni þar sem kór Reykhólaprestakalls og hópur ungmenna leiða sönginn. Fermingarbörn prestakallsins taka þátt í athöfninni. Organisti er Svavar Sigurðsson en þar koma hristur, trommur og gítarar einnig við sögu. Sunnudagaskólinn verður á sínum stað kl. 11 um morguninn.

 

 

Félagsvist Vinafélags Grettislaugar

Vinafélag Grettislaugar á Reykhólum efnir til félagsvistar í húsnæði Hlunnindasýningarinnar við Maríutröð fimmtudagskvöldið 11. mars. Spilamennskan hefst kl. 20 og miðaverðið er 600 krónur. Allir eru velkomnir.

 

Nánar hér

 

Stóra upplestrarkeppnin á Reykhólum

Fulltrúi Reykhólaskóla í Stóru upplestrarkeppninni í 7. bekk grunnskólanna er að þessu sinni Elínborg Egilsdóttir á Mávavatni. Allir eru velkomnir á samkomuna sem verður í íþróttahúsinu á Reykhólum mánudaginn 8. mars og hefst kl. 17.

 

Nánar hér

 

Þjóðaratkvæðagreiðsla 6. mars 2010

Kjörfundur vegna þjóðaratkvæðagreiðslu laugardaginn 6. mars 2010. Í Reykhólahreppi verður kosið í einni kjördeild í Hótel Bjarkalundi. Kjörfundur hefst kl. 10:00 og honum lýkur kl. 18:00.

 

Nánar hér

 

Atburðadagatal

« Febrúar 2012 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      

Héðan og þaðan