Fyrirlestur um detox og hollustu
Á þessum fyrirlestri, sem haldinn verður á Reykhólum föstudaginn 19. mars kl. 19-21, er lögð áhersla á detox (afeitrunar) mataræði og heilsusamlega lifnaðarhætti dags daglega. Kenndar ýmsar aðferðir sem auðvelt er fyrir hvern og einn að tileinka sér og setja inn í sína daglegu rútínu, sem stuðlar að því að viðhalda daglegu líkamlegu heilbrigði. Einnig verður farið í aðferðir sem losa ykkur við löngun í alls konar óhollustu og auðvelda ykkur að viðhalda kjörþyngd. Að lokum verður sýnikennsla í því að búa til holla sjeika og drykki.
Leiðbeinandi Sólveig Eiríksdóttir www.himnesk.is
Verð kr. 2.900. Skráning í síma 437 2390 eða í netfanginu skraning@simenntun.is
