Helgihald á Reykhólum
Helgistund verður í Barmahlíð á Reykhólum kl. 14.30 sunnudaginn 14. mars. Um kvöldið eða kl. 20.30 verður „léttmessa“ í kirkjunni þar sem kór Reykhólaprestakalls og hópur ungmenna leiða sönginn. Fermingarbörn prestakallsins taka þátt í athöfninni. Organisti er Svavar Sigurðsson en þar koma hristur, trommur og gítarar einnig við sögu. Sunnudagaskólinn verður á sínum stað kl. 11 um morguninn.
