Söngdagur fyrir alla haldinn að Laugum
Söngdagur fyrir alla verður að Laugum í Sælingsdal laugardaginn 27. febrúar. Hann hefst kl. 10 og stendur fram til um kl. 17. Þátttökugjald kr. 2.800 og innifalið kaffi og léttur málsverður. Þau sem vilja vera með eru beðin að tilkynna sig í netfangið svavar@dalir.is eða í síma 891 8339.
