Tenglar

Atburðir

Dagur leikskólans - opið hús í Hólabæ

Opið hús verður í Hólabæ á Reykhólum kl. 14-16 föstudaginn 5. febrúar í tilefni Dags leikskólans sem er daginn eftir. Þann dag árið 1950 eða fyrir sextíu árum stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara samtök sín. Þetta er þriðja árið í röð sem leikskólar halda daginn hátíðlegan.

 

Nemendur og kennarar Hólabæjar bjóða alla velkomna til að koma og skoða skólann, spjalla við mannskapinn og sjá hvað helst hefur verið fengist við að undanförnu.

 

Atburðadagatal

« Mars 2010 »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Héðan og þaðan