Tenglar

Kræklingur í fjöru.
Kræklingur í fjöru.
Í meginatriðum eru aðeins þrjár aðferðir við að skapa atvinnu og verðmæti. Það er í fyrsta lagi með því að nýta náttúruauðlindir eingöngu, í öðru lagi með því að nýta þekkingu eina og sér og í þriðja lagi má skapa störf með því að blanda þessum tveimur þáttum saman. Nýting náttúruauðlinda leiðir til þekkingar á verklagi og skapar reynslu sem er miðlað milli kynslóða án þess að skólabókarlærdómur komi þar nærri. Vestfirðingar hafa lært að lifa af í sínu umhverfi gegnum aldirnar og hefur nýting náttúruauðlinda svæðisins byggst á reynslu á tilteknu verklagi. En þetta dugir ekki lengur....
Meira
laugardagur 3. janúar 2009

Hvert erum við að stefna?

Dr. Þorleifur Ágústsson, lífeðlisfræðingur á Ísafirði.
Dr. Þorleifur Ágústsson, lífeðlisfræðingur á Ísafirði.
Mér fannst ánægjulegt að sjá frétt um skynsamlegar rannsóknir sem verið er að stunda á Tálknafirði. Þar er verið að rannsaka hvort ekki sé gott að ala saman bláskel og þorsk. Þetta er að vísu ekkert nýtt. Sameldi eða fjöleldi hefur verið stundað víða um heim í einhverjum mæli - og með ýmsum tegundum. Ég hef átt samtöl og umræður við fjölda vísindamanna um þessi mál - bæði evrópska og vestanhafs. Við höfum jafnvel gerst svo djarfir nafnarnir - ég og Þorleifur Eiríksson hjá Náttúrustofu Vestfjarða, að skrifa umsóknir - já, fleiri en eina - til að þess að reyna að afla peninga til slíkra rannsókna. Rannsókna sem skilgreina mikilvægi og möguleika á að nota eina tegund (bláskel) til að minnka lífræna mengun frá þorskeldiskvíum....
Meira
föstudagur 12. desember 2008

Mikilvægi matvælaframleiðslu á Vestfjörðum

Ásgerður Þorleifsdóttir og Viktoría Rán Ólafsdóttir, verkefnastj. hjá Atvest.
Ásgerður Þorleifsdóttir og Viktoría Rán Ólafsdóttir, verkefnastj. hjá Atvest.

Langþráð tækifæri: Vestfirðingar láta ekki deigan síga og líta á núverandi efnahagsástand sem langþráð tækifæri til að markaðssetja íslenskar hágæða afurðir frá Vestfjörðum. Mikilvægi matvælaframleiðslunnar og áhrif hennar á hagvöxt virðist oft hafa gleymst þar til nú. Fjölmiðlar og stjórnvöld fjalla nú um raunveruleg verðmæti og grunnstoðir atvinnulífsins og vilja hlúa betur að innlendum atvinnugreinum, t.d. matvælaframleiðslu.

...
Meira
sunnudagur 30. nóvember 2008

Breytingar!

Þorgeir Pálsson frkvstj. Atvest. Ljósm. bb.is.
Þorgeir Pálsson frkvstj. Atvest. Ljósm. bb.is.
1 af 2

Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða kemur nú fram undir nýju merki. Merkið er tákn fyrir þær breytingar sem hafa fylgt í kjölfar stefnumótunar félagsins, sem hófst snemma í vor. Starfsmenn og stjórn Atvest hafa unnið að gagnrýnni naflaskoðun, endurhugsað hlutverk og markmið félagsins og sameinast um nýja framtíðarsýn. Sveitarfélög, fyrirtæki og einstaklingar hafa tekið þessum breytingum vel og stutt þá hugsun sem þær tákna. Sú hugsun er í raun einföld; eitt stórt atvinnuþróunar- og þekkingarfyrirtæki á Vestfjörðum, sem vinnur að atvinnuþróun, nýsköpun, þekkingaröflun og miðlun og beitir sér á öllum stigum virðiskeðjunnar, í samstarfi við sveitarfélög, fyrirtæki, stofnanir og aðra hagsmunaaðila. Einföld sýn og réttlætanleg, þar sem Vestfirðir hafa vart efni á öðru en að samstilla þá krafta og þá þekkingu sem til er.

...
Meira
miðvikudagur 12. nóvember 2008

Opið bréf til fólksins í Reykhólahreppi

Guðjón D. Gunnarsson.
Guðjón D. Gunnarsson.

Kæru sveitungar, vinir og félagar. Nú er krepputal í fjölmiðlum, spáð atvinnuleysi og örbirgð. Ef þessi ódrepandi svartsýni nær tökum á þjóðinni mun þetta verða raunin. Að sjálfsögðu mun verða samdráttur í sumum atvinnugreinum, en það skapar aukna möguleika fyrir aðrar. Við lækkun gengis krónunnar skapast aftur grundvöllur til að framleiða vörur hérlendis, sem fluttar hafa verið inn síðustu áratugi og jafnvel til útflutnings.

...
Meira
laugardagur 20. september 2008

Guðmundur í Kópavogi og ekkjan í Reykhólasveit

Jón Bjarnason alþingismaður.
Jón Bjarnason alþingismaður.

Varaformaður stjórnar Íslandspósts, Guðmundur Oddsson, ritar athyglisverða grein í eitt dagblaðið nýverið um póstþjónustu og súr ber. Þar reynir hann að réttlæta niðurskurð og skerðingu á póstþjónustu, einkum í dreifbýli. Hann hælir sér af því að hafa verið mörg ár í stjórn Íslandspósts og tekið þátt í að stýra honum inn í „breytt rekstrarumhverfi," les markaðsvæðingu. Það er í sjálfu sér áhyggjuefni þegar maður með svo eindregna afstöðu markaðshyggju er settur í stjórn almannaþjónustufyrirtækis eins og Íslandspósts. Þess sjást enda ýmis merki að nú eigi að búa í haginn fyrir einkavæðingu og sölu fyrirtækisins á komandi árum.

...
Meira
fimmtudagur 28. ágúst 2008

Hin heimska hönd hagræðingarinnar

Grímur Atlason. Mynd bb.is.
Grímur Atlason. Mynd bb.is.

Stór fundur í Dalabúð var haldinn í gær. Sauðfjárbændur boðuðu til fundarins með stuttum fyrirvara en ljóst af fundarsókninni að dæma að ekki var vanþörf á. Niðurstaða fundarins var skýr. Vextir í þessu landi eru auðvitað út úr öllu korti. Afurðaverð til bænda er í besta falli lélegt en í ljósi fákeppni á matvörumarkaði er lítil von á breytingum nema með verulegum aðgerðum sem fælist í þungi í stað hjómkenndra óska fluguvigtarráðherra. Það er með ólíkindum að þegar hrávara hækkar í heiminum, og matvæli þar ekki síst, skuli það vera bændur á Íslandi sem taki á sig skerðinguna einir framleiðenda. Ekki nóg með að vaxtakostnaður og innkaupakostnaður hækki um tugi prósenta hjá þessari stétt heldur þurfa þeir líka að sætta sig við litla sem enga hækkun afurðaverðs.

...
Meira
þriðjudagur 19. ágúst 2008

Vegleysur í Barðastrandarsýslu

Úlfar B. Thoroddsen.
Úlfar B. Thoroddsen.

Ég las það í Morgunblaðinu, að akvegir inni á hálendinu væru nú margir hverjir nánast ófærir vegna þurrka og þess vegna ekki mönnum bjóðandi. Margir hafa lent þar í hinum verstu hremmingum sem lýsast í eyðilögðum hjólbörðum og sundurhristum bílum. Hvar eru yfirvöld samgöngu- og vegamála! Ég las það jafnframt í BB að vegurinn austan við Þorskafjörð, sem nú er í endurbyggingu, er af sumum talinn ónýtur og alls ekki mönnum bjóðandi. Ástandið lýsir sér einkum í ójöfnu, grófu og egghvössu yfirborði. Margir hafa eyðilagt hjólbarða bíla sinna á þessum vegarkafla í sumar. Þetta kemur mér ekki á óvart. Ég hef fyllstu samúð með öllum þeim sem lenda í slíkum hremmingum.

...
Meira
mánudagur 19. maí 2008

Gleymum okkur ekki í formlegheitum

Ég verð að segja að ég móðgaðist hálfpartinn við þessa fyrirsögn, „Aldraður maður í heimsókn á heimaslóð", við fréttina um hann Halla okkar í Nesi, sem og fannst mér fréttin frekar ópersónuleg. Eftir að hafa viðrað þessa skoðun mína við nokkrar manneskjur hef ég ástæðu til að ætla að fleiri séu sammála mér.

...
Meira
sunnudagur 4. maí 2008

Á ég að grenja með Pétri?

Árið 1987 voru allir hreppar Austur-Barðastrandarsýslu sameinaðir í einn, núverandi Reykhólahrepp. Meðan á undirbúningnum stóð fengum við mikið hrós og klapp á bakið frá stjórnvöldum. Ekki stóð á loforðum um stuðning á öllum sviðum, þar sem við gáfum öðrum sveitarfélögum gott fordæmi....
Meira
Síða 17 af 17

Atburðadagatal

« Maí 2012 »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Héðan og þaðan