Spurningunni um ESB verður að svara
...
Meira
Hvernig ætli best sé að skapa atvinnu í landinu? Þetta er kannski mikilvægasta spurningin sem við getum spurt okkur núna, þegar á milli 17 og 18 þúsund manns ganga um atvinnulausir. Þetta er spurningin sem stjórnmálamenn eiga umfram allt að velta fyrir sér og hlýtur að vera efst í kolli allra þeirra sem láta sig þetta mikilvægasta úrlausnarefni þjóðfélagsins einhverju varða. Svarið er auðvitað það að búa sem best að atvinnulífinu. Gefa því tækifæri innan skynsamlegra marka á grundvelli almennra leikreglna. Við höfum oft kallað það að bæta rekstrarskilyrðin og kemur fáum spánskt fyrir sjónir. Síðan geta menn til viðbótar beitt alls konar örvandi aðgerðum sem allir þekkja og hefur oft gefið góða raun. Dæmi: Uppbygging í vegamálum, átak í viðhaldi opinberra bygginga, endurgerð gamalla húsa. Þetta eru dæmi um það hvernig nýta má almannafé beinlínis í þessu skyni.
...Sjálfstæðismenn halda áfram að standa vörð um eiginhagsmuni kvótahafa. Málflutningur þeirra byggist, sem endranær, á því að þjóðinni sé fyrir bestu að örfáir aðilar fái að sitja að fiskveiðiheimildunum gegn einföldu loforði um að þeir hagi sér vel með þessa miklu hagsmuni og leyfi þjóðinni að njóta afrakstursins með sér. Það loforð hafa þessir aðilar svikið eins og öllum er kunnugt um. Hannes Hólmsteinn Gissurarson, hinn ötuli talsmaður og ráðgjafi Sjálfstæðisflokksins, talaði fyrir efnahagshrunið mikið um „íslenska efnahagsundrið“ sem hann taldi eiga sér ákaflega eðlilegar útskýringar. Það hefði verið framkallað með því að „virkja fjármagn sem áður lá dautt“.
...Nýlega voru settar reglur um fjármál alþingismanna, líkt og tíðkast víða erlendis. Enginn vafi er á því að reglur af þessu tagi eru til mikilla bóta og til þess fallnar að efla traust og gegnsæi stjórnarathafna. Það er þinginu og þeim sem stýrðu vinnunni til sóma að þetta skyldi til lykta leitt í ágætri sátt. Samkvæmt reglunum ber alþingismönnum að gefa upp tilteknar eignir og gjafir. Þeim ber ekki að upplýsa um eignatengsl maka eða skuldir, en hugsanlega verður slíkum ákvæðum bætt við síðar. Satt að segja vona ég að svo verði.
...